Færsluflokkur: Bloggar
13.5.2007 | 17:40
Búferlaflutningar og fleira
Þá er fjölskyldan flutt til Keflavíkur og búin að vera í eina viku í nýju heimilisfangi.
Það er gott að þurfa ekki að fara af stað til vinnu í Reykjavíkurhreppi eldsnemma að Mánudagsmorgni til að mæta í vinnu og fara svo heim aftur á Föstudagseftirmiðdegi. Nú fer maður til vinnu að morgni og heim aftur að kveldi. Þetta er reyndar búinn að vera annasamur tími þessa viku, verið að koma sé fyrir í íbúðinni og fylgjast með öllu sem gerist í ferlinu.
Svo til að tala um eitthvað anna þá vil ég óska félögum mínum í VG til hamingju með þennan stórsigur að auka fylgið og ná að auka þingmannafjöld um fjóra þingmenn, þetta sýnir að fólk veit hvoru megin hjartað er, allavega eru þetta mannelskandi sálir.
Var megnið af kosninganóttinni á kosningaskrifstofu VG í Reykjanesbæ þar sem saman var kominn góður hópur fólks sem hugsar um það sem betur má fara á landinu, og þakka ég þeim fyrir móttökurnar. Svo fá félagarnir í VG á Grundarfirði kveðjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2007 | 21:38
Búferlaflutningar
Já þá er komið að því að flytjast frá einu nesinu yfir á það næsta.
Ég var í dag suður í Reykjanesbæ, nánar tiltekið Keflavík að taka við lyklum að nýja heimilinu sem fjölskyldan mun flytja í um næstu helgi. Það er komin smá spenningur í fólkið, konan að skipta um vinnu, dóttirin að fara á nýjann leikskóla og ég um styttri veg að fara til vinnu þar sem ég hef unnið í Reykjavík um nokkurt skeið.
Sumir spyrja kanski hversvegna við flyttum ekki til Reykjavíkur, en ástæðan er einföld. Það er ekki verandi í Reykjavík nema þá helst til að vinna. Svo er svo mikil mengun þarna að ég vil ekki að dóttir mín alist upp við þetta stress sem þar er að auki. Maður er ekki lengi að skutlast á milli Keflavíkur og Reykjavíkur og enn styttri tíma heiman frá sér og upp á flugvöll þegar farið skal í frí.
Ég er reyndar ánægður með að lögreglan er farin að herða tökin á fíkniefnaaulum í Keflavík svo að það verður ánægjulegra að koma þangað. Vona ég svo að það verði bara fínt að búa í Keflavík en ég á nokkra vini og kunningja þar um slóðir sem er ein af ástæðum fyrir flutningum þessum.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2007 | 13:20
Pósturinn seinn eða í einstefnu.
Eitt af mínum áhugamálum er að safna merkjum, ekki frímerkjum heldur svokölluðum tignarmerkjum. Þessi áhugi byrjaði hjá mér fyrir einhverjum árum síðan, en þar sem erfitt getur verið að finna og fá íslensk merki vegna þeirra reglna sem margir þeir aðilar sem slík merki nota hafa.
Merki frá Securitas er mjög erfitt að fá og eins frá Landhelgisgæslunni og friðargæslunni ásamt fleiri aðiljum.
Mér áskotnaðist fyrir nokkru síðan kaskeyti frá Lögreglunni og notaði ég tækifærið og sendi húfuna til Portúgal þar sem einn kollegi minn í safnaraheimum langaði til að skipta við mig. Í staðin sendi hann mér tignarmerki lögreglunna í Madeira borg, við sendum hvor sinn pakkann á sama degi.
Pakkinn til mín kom sextánda Apríl en pakkinn sem félagi minn á að fá er ekki kominn til hans þegar þetta er ritað. Hvað er að hjá póstinum? Er pósturinn að hraðferð í aðra áttina en ekki hina?
Þegar ég sendi eitthvað frá mér þá vil ég að það komist hratt og örugglega til skila en að þurfa að bíða í langan tíma eftir því að pósturinn skili sér til viðtakanda er óæskilegt. Þetta gæti kostað það að ég þurfi að fljúga sjálfur með pakkana sem ég sendi með tilheyrandi kostnaði þó svo að þeir sem senda mér eitthvað geti sent með póstinum þar sem svo virðist sem hann fari í einstefnu, til landsins en ekki frá landinu.
Svona til að hafa allann vara á þá verður kanski að koma fram að pakkinn sem ég sendi er öllu stærri en pakkinn sem sendur var til mín. Það gæti verið hluti af skýringunni hversvegna pakkinn er svona seint kominn til skila.
Svo fyrir forvitna þá er hér tengill á heimasíðu mína þar sem hægt er að skoða hluta af safninu mínu
http://www.kaldi.is/merkjavara/merkjasafnid/merkjasafn.htm
Góðar stundir og gleðilegt sumar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2007 | 15:16
Landsfundir
Aldrey á æfinni hef ég orðið vitni af annarri eins vitleysu.
"Eins og talað úr mínu hjarta" eru orð sem ég mun seint gleyma eftir þessa helgi. Ég fæ æluna uppí kok þegar maður les blogg heilaþveginna pólitíkusa Sem elska, dýrka, dá, formannin sinn og sjá ekki sólina fyrir þessarri vitleysu sem vellur uppúr þeim.
Loforðalistar flokkanna eru ekkert til að hrópa húrra fyrir, ekki eru formennirnir heldur svo heillandi að vert sé að henda atkvæðinu í þá. Geir og hans flokkur er búinn að vera of lengi við stjórnvölinn, Bibba (Ingibjörg) og samfylkingin er eitthvað sem ég fæ klýgju yfir og ekki virðist það betra annarsstaðar.
Ég er talið mig vera meira til vinstri en miðað við loforðalista flokkanna þá sé ég í fljótu bragði ekki neitt sem gæti fengið mig til að kjósa þá ekki nema þá kanski Íslandshreyfingin en þeir eru eini flokkurinn sem vill afnema skatta á aldraða og öryrkja á móti kemur að þeir eru heilaþvegnir af þessu EES máli og vilja okkur sem fyrst til Brussel svo þá er ekki vert að henda atkvæðinu þangað.
Frjálslyndi Flokkurinn er þá sá eini sem eftir stendur vegna þess höfuðmáls um kvóta sem þeir hafa á stefnuskránni. Þeir vilja ekki ganga í EES sem gerir mig sáttan, það er bara svo að Flokkurinn er misskilinn þar sem andstæðingar þeirra tala um þá eins og rasista, þessir andstæðingar eru bara ekki betur gefnir en þetta svo þeim er vorkun (fá samt ekki samúðaratkvæði).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.4.2007 | 23:25
Varaliðið hans Björns Bjarna
Heyrði í dag viðtal við fráfarandi framkvæmdarstjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar þar sem hann fjallaði um varaliðið sem Björn Bjarnason talaði um um daginn.
Þar kom fram að hann er eins og ég hlyntur því að komið verði upp varaliði sem búið væri þjálfuðum mönnum sem kæmu meðal annars úr röðum björgunarsveita. Ég heirði hvergi minst á að um væri að ræða vopnað lið þar sem ég hef enga trú á að björgunarsveitarfólk vilji koma nálægt svoleiðis tólum. Það kom hinsvegar fram að mönnum væri í sjálfsvald sett hvort það vildi tilheyra svona liði eins og varaliðið á að vera, sem varalið til löggæslustarfa (ekki hernaðarstarfa eins og samfylkingarmenn tala um).
Svo til að bæta við þá get ég allveg hugsað mér að vera í þessu varaliði en eingöngu með því skilyrði að allir sem þar munu starfa verði lausir við að þurfa að burðast með stríðstól, semsagt varalögreglulið en ekki her.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 18:39
Hver beitti hvern þrýstingi???
Svona eru deilumálin í heiminum í dag, reyndar hefur það svo verið áður líka.
Spurningarnar sem spretta upp í kjölfarið eru:
1) En hverjum skal trúað?
2) Hver beitti hvern þrýstingi?
3) Hvað er verið að fela og fyrir hverjum?
Jú það er kanski erfitt að svara þessu en ég get reynt við síðustu spurninguna, svar mitt við henni mun þá vera eftirfarandi:
Þeir eru að fela sannleikann fyrir sjálfum sér svipað og maðurinn sem leggur kapal og svindlar til að hann gangi upp...
eða hvað???
Íranar segja Breta hafa beitt 15 sjóliða þrýstingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú er gaman að minnast á bullið í Össuri Skarphéðins um það að Björn Bjarna sé að stofna her. Svo virðist sem Össur hafi ekki kynnt sér málið nógsamlega nema hann sé svona mikið á móti því að einhver annar verði á undan honum að stofna íslenskann her, hann vill nefnilega koma Íslandi í Evrópusambandið en þar eru menn farnir að tala um Evrópusambandsher sem mun að öllum líkindum verða líka að íslenskum her ef draumur Össurar rætist.
Ísland er reyndar með vísi að her eða allavega herdeild eitthvað yfir hundrað mans sem kallast friðargæsla en ráðamenn neita að um her sé að ræða sem er að sumu leiti rétt þar sem að ákveðinn fjölda manna þarf til að mynda her en til dæmis þá þarf,
3000 - 5000 til að mynda herfylki sem hefur yfir sér offursta eða einnar stjörnu hershöfðingja,
50.000 + til að mynda her. Sem þýðir að Ísland hefur ekki nægann manskap til að mynda her.
Til nánari útlistunnar fyrir Össur og jafnvel ánægju þá er fyrir löngu búið að hanna tignarmerki fyrir væntannlegann Evrópuher sem Ísland verður aðili að ef draumur hans rætist svo ekki þarf að hafa áhyggjur af að það þurfi að hanna þessi merki, sjá hér.
Svo hef ég tengil á merki íslensku friðargæslunnar til að minnast þeirra, sjá hér.
og reyndar líka gömlu einkennismerkin líka sjá hér.
Þannig að menn geta séð að það sé búið að og verið að koma inn her hér á landi, einn frá Sjálfstæðis og framsóknarríkisstjórn, og annan miðað við drauma samfylkingarinnar.
Það sem Björn Bjarna var að tala um var viðbót við lögreglu og á ekkert skylt við her.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2007 | 19:42
vændi löglegt!!!???
Heirði í fréttum að búið væri að lögleiða vændi, þ.e. svo fremi sem þriðji aðili hagnist ekki á kaupum og sölu á vændi.
Einnig kom fram í sömu frétt að maðurinn hafi stofnað fyrirtækjakennitölu um sitt vændi sem þýðir að hann gerir sjálfsagt upp til skatts. Ríkið er greynilega þriðji aðilinn í þessu öllu samann ef maður hefur skilið þetta rétt.
Einfalt dæmi: maður eða kona selur sig sem er löglegt annar aðili kaupir þjónustuna og greiðir uppsett verð, löglegt líka. Sá sem selur sig þarf að gera upp til ríkis í formi skatta vegna hagnaðar af meintri vændissölu og gerir þar með ríkið að þriðja aðila...
Talandi um mis-vit-(leysu) stjórnmálamanna að koma með svona ólög!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2007 | 23:29
Jájá kvaddi kústinn!
Naomi Campell kvaddi kústinn í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 15:02
Stjórnmál og femínismi
Ég hef verið að velta fyrir mér þessu með "femínista" í pólitík, sérstaklega þar sem ég aðhyllist vinstri stefnunni.
Ef "femínistar" myndu hætta að eyðileggja vinstristefnuna þá verð ég sáttur vinstri maður. En ef þetta lið sem er ekkert annað en rauðsokkur sem vilja valdið til kvenna og á ekkert skylt við femínisman sem vill jafnrétti, heldur áfram þessu bulli þá kem ég örugglega til með að kúvendast í pólitíkinni og mun líklega ekki verða sá fyrsti hvað þá hinn síðasti.
Ýmislegt við stefnu VG er þess vert að styðja en ekki allt það er á hreinu. Sérstaklega er ég á móti þessu brölti "femínistanna" innan VG þar sem margar hverjar taka ekki neinum sönsum þegar reynt er að spyrja um góð rök fyrir því sem þær bulla útúr sér.
Ég hef fundið bloggara sem hafa verið bannaðir á bloggsíðum einhverra af þessum "femínistum" þrátt fyrir kurteisleg svör og spurningum gagnvart þeirra pistlum um "femínisk" mál sjá hér, http://sveiflan.blog.is/blog/sveiflan/entry/144399/
Þeir sem glöggir eru munu hafa tekið eftir að orðið femínisti er hafður innan gæsalappa þar sem í mínum huga eru þessar konur ekki jafnréttissinnaðar margar hverjar, sérstaklega ef tekið er tillit til þess að þær finna hjá sér þörf til að banna frjáls skoðanaskipti á sínum síðum.....
Meira síðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Desember 2014
- Október 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- September 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007