Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Forræðishyggja heimsins

Það er ýmislegt skrýtið sem maður les í fréttum sem lítur út fyrir að vera brot á mannréttindum, og tel ég að fólk hljóti að verða áhyggjufullt í sambandi við forræðishyggju stjórnvalda.

Bretarnir sem hafa eins og við bannað reykingar á veitingahúsum eru að fara að meina fólki sem reykir að gerast fósturforeldrar, næst verður líklega öllu reykingafólki meinað að eignast börn. Svo eru það Baunarnir, þeir reka fólk úr vinnu fyrir það eitt að hylja andlit. Hafa meira að segja ráðherraheimild til þess. Það er ég viss um að mannréttindadómstóll myndi dæma Danina seka fyrir svona nokkuð.

Ég hef séð marga foreldra barna sem reykj og ekki virðist börnunum hafa orðið meint af. Ég hef líka séð nokkra fósturforeldra sem reykja og ekki hef ég heldur séð að börnunum hafi orðið meint af.

Svo þetta með að hylja andlitið þá verð ég að viðurkenna að það eru fjölmargir sem ekki sjá framan í mig þegar ég tala við þá, hvers vegna? Jú mikið af samskiptum mínum við aðra er í gegnum síma og er það þess valdandi að viðmælandi sér ekki framann í mig. Ég hef ekki séð að þetta hafi hamlandi áhrif á samskipti mín við aðra. Það að hylja andlit er val hvers fyrir sig og ef einhver ákveður að hylja andlitið á hvaða forsendum sem hann/hún vill þá sé ég ekkert athugavert við það.

Fólk sem reykir hefur valið það sjálft og á að eiga það við sig hvort það vilji hætta að reykja, það á að sama skapi ekki að þvinga fólk til að hætta reykingum þó að um ósóma sé að ræða.

Ég banna ekki fólki að reykja og ég banna ekki fólki að hylja andlit sitt. Ég er ekki með nefið í hvers mans koppi til að athuga hvort þessi eða hinn sé að breyta rétt eða rangt gagnvart samfélaginu. Ég er á móti þessarri forræðishyggju og kröfum sem misvitrir stjórnmálamenn og aðrir setja fram til að meina fólki að lifa sem frjálsir einstaklingar í frjálsu landi.


Þetta er skrýtin frétt!

Fyrir það fyrsta þá hef ég aldrei heirt talað um að sprengjuvörpur séu eldflaugar, þær notast til að kasta sprengjum lengra en maðurinn nær.

Svo er það þessi setning sem ekki klárast, þessi síðasta sem endar furðulega. Hvað eru fréttamenn MBL að gera í vinnuni? Ég vil að fréttin sé kláruð, ekki hálfkláruð lesið hér "Talsmenn Bandaríkjahers segja að eldflaugin hafi verið gerð með sprengjuvörpum eða eldflaugum, en að öðru leyti hafa heryfirvöld."

Já já, ókláruð setning!


mbl.is Sex íraskir fangar létust í árás á fangabúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AF HVERJU EKKI DRYKK MEÐ ZERO KÓK?

Ég hef ekki fengið mér kók í nokkur ár og er fyllilega sáttur við að vera laus við kók og marga aðra gosdrykki. Ég hef megnustu óbeit á kók svo ég endurtek fyrirsögnina " Af hverju ekki drykk með ZERO KÓK "! 


mbl.is Auglýsingaherferð fyrir Coke Zero í bága við siðareglur SÍA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AN-12 flugvél notuð

Þetta er skemtilegt, það er komið nýtt AEROFLOT flugfélag og þeir nota gömlu rússaflutningavélina Antonov AN-12. Þessar vélar eru fyrir löngu komnar til ára sinna en byrjað var að smíða þær uppúr 1960 en Sovéski herinn notaði AN-12 flutningavélar lengi vel.

Antonov AN-12 vélarnar voru smíðaðar bæði fyrir herflutninga og sem fraktflugvélar fyrir hin allmennu flugfélög.

Það má nálgast góðar upplýsingar um AN-12 hér: http://www.xp-office.de/an12technical.htm


mbl.is Fyrsta flug Norðanflugs farið um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband