Leita í fréttum mbl.is

Gamalt viðtal við Storminn, tekið þegar hann lét af störfum sem lögreglumaður

Svona í tilefni atburða síðustu daga finst mér við hæfi að byrta hér viðtal sem tekið var við pabba þegar hann var að láta af störfum sem aðstoðarvarðstjóri hjá embætti lögreglustjórans á Snæfellsnesi, Október 2005.

Skessuhorn:

Óli stormur sestur í helgan stein

27. október 2005
Ólafur Arnar Ólafsson lögreglumaður í Stykkishólmi hefur látið af störfum eftir áratuga þjónustu við Snæfellinga. Ólafur, sem er betur þekktur undir nafninu Óli stormur, hóf fyrst störf í lögreglunni árið 1972 en lauk námi í Lögregluskólanum árið 1974. Um síðustu mánaðamót lét hann af störfum vegna aldurs og af því tilefni var honum haldið hóf í veitingahúsinu Krákunni í Grundarfirði. 
 

Ólafur segir feril sinn í lögreglunni hafa í raun hafist árið 1960 þegar Lúther Salómonsson kallaði hann sér til aðstoðar vegna fjöldaslagsmála. Voru þar skildir að tugir manna sem voru í blóðugum slagsmálum. Í þá daga var Ólafur sjómaður og í framhaldinu aðstoðaði hann lögregluna um árabil í landlegum. Hann segir verbúðalíf hafa verið um árabil mjög skrautlegt á Snæfellsnesi og þar hafi oft komið til ryskinga þegar menn gerðu sér glaðan dag. Löngum hafi lögreglumenn á Snæfellsnesi verið einir að störfum og því hafi hlutskipti þeirra verið erfitt því ekki hafi verið gott að standa einn andspænis tugum eða hundruðum manna sem voru að skemmta sér. Því hafi oft reynt á langlundargeð og samningalipurð lögreglumanna. Lítill neisti hafi getað kveikt mikið ófriðarbál sem oft hafi verið erfitt að slökkva.

 

Batnandi bæjarbragur

 

Ólsarar og Sandarar áttu sjaldnast skap saman þegar Bakkus var meðreiðarsveinn þeirra. Ekki veit Ólafur hvers vegna svo var en staðfestir að sjaldnast hafi íbúar þessara staða getað skemmt sér undir sama þaki án þess að fjöldaslagsmál fylgdu í kjölfarið. Aðspurður hvort hann hafi aldrei slasast við störf sín segir Ólafur svo ekki vera. Þar hafi líkamlegt atgerfi hans trúlega hjálpað til og útsjónarsemi. Það gat líka verið tímafrekt að stilla til friðar. Ólafur rifjar upp að einu sinni hafi hann við annan mann þurft að fjarlægja á annað hundrað manns úr verbúð í Ólafsvík. Það hafi tekið rúma tvo tíma en það hafi gengið slysalaust fyrir sig í það skiptið. Nokkrum dögum síðar hafi sú verbúð hinvegar verið lögð í rúst en þá hafi lögreglan ekki verið til staðar.

Ólafur segir bæjarbrag hafa breyst mjög til batnaðar hin seinni ár á Snæfellsnesi og nú heyri fjöldaslagsmál og sukksamt verbúðarlíf sögunni til. Hann segir enga eftirsjá í því. Ekki sé ástæða til þess að sjá eftir rugli og vitleysu í mannlegum samskiptum og fráleitt að fólk fari að sjá blóðug slagsmál án nokkurs tilefnis í rósrauðum bjarma endurminninga.

 

Storms viðurnefnið

 

Eins og áður sagði var Ólafur á yngri árum sjómaður og síðan hann hóf störf í lögreglunni fyrir rúmum þrjátíu árum hefur sjórinn togað hann til sín. Hann lagði lögreglubúninginn um tíma á hilluna og gerðist skipstjóri að nýju um stund. Fæstir þekkja Ólaf undir skírnarnafni sínu því sjaldan er hann nefndur öðruvísi en sem Óli stormur. Þetta viðurnefni hefur fylgt honum frá unga aldri og tengist sjósókn hans. Hann segir nafnið hafa komið í kjölfar róðurs sem hann fór á báti sínum Kristleifi, sem var 9 tonn að stærð. Eitt sinn í mikilli brælu hafi hann haldið í róður og skömmu síðar hafi allur flotinn fylgt á eftir. Hann hafi náð að draga sín net en flestir aðrir skipstjórar hafi lent í miklum vandræðum. Síðan hafi hann ávallt verið kenndur við storminn og sér hafi alla tíð líkað það vel.

 

Samningaleiðin best

 

Ólafur hefur nú látið af störfum og segist hafa áhuga á að leggja land undir fót og skoða sig um í heiminum á næstu árum. Hann eigi víða inni heimboð sem hann vilji nú sinna. Hvort að hann haldi til hafs á ný vill hann engu um spá og útilokar ekki að til þess kunni að koma.  

Aðspurður segir hann engan einn atburð standa uppúr sínum langa ferli sem lögreglumaður. Hann hafi oft komist í hann krappann þegar skilja hafi þurft stóra hópa fólks. Þar hafi henn hins vegar notið kennslu Lúthers sem áður var nefndur sem kenndi honum þolinmæði og því hafi hann aldrei mætt mönnum öðruvísi en með berar hendur. Aldrei hafi komið til greina af sinni hálfu að nota kylfur eða önnur hjálpartæki. Það hafi einungis verið ávísun á harðari deilur og slagsmál. Samningaleiðin hafi að sjálfsögðu verið tímafrekari en þegar upp hafi verið staðið hafi hún ávallt verið öllum fyrir bestu.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Svona til aukins fróðleiks þá var Stormurinn (Pabbi) síðasti aðstoðarvarðstjórinn við embætti lögreglustjórans á Snæfellsnesi.

Nú í dag telst mér til að það séu tveir aðstoðarvarðstjórar eftir á öllu landinu, það er nefnilega verið að leggja niður þessa stöðu og fækka þarmeð stöðugildum í lögreglunni.

Nánar um stöðugildi í lögreglunni má sjá hér: http://www.kaldi.is/merkjavara/loggan/logga-2007.htm

Ef menn vilja þá er hæg að fara á þessa slóð http://www.kaldi.is/merkjavara/icelandic_insignia.htm

til að skoða meira um íslensk merki og þá er ég með lögregluna frá 1915-1930, og til dagsins í dag.

Vantar nokkrar myndir af nýju búningunum til að fullkomna verkið.

Svo má alltaf benda á að ég er mikill merkjasafnari fyrir þá sem vilja og geta séð af einhverjum merkjum til mín. Safnið mitt sjá hér http://www.kaldi.is/merkjavara/merkjasafnid/merkjasafn.htm

Sendist á

Ólafur B Ólafsson

Hringbraut 136H

230 Reykjanesbær


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband