Leita í fréttum mbl.is

Ekki með númer!!! BULL OG MEIRA BULL!!!

Ef þessir aular þykjast ekki hafa númer þá eru þeir ekki lögreglumenn.

Hví segi ég það?

Jú því samkvæmt reglugerð nr8/2007 er ein góð grein og er hún eftirfarandi

10. gr.

Lögreglunúmer.

Allir lögreglumenn, sem lokið hafa prófi frá Lögregluskóla ríkisins, svo og lögreglunemar, skulu fá úthlutað fjögurra stafa lögreglunúmeri. Ríkislögreglustjóri annast úthlutun lögreglunúmera og haldast þau óbreytt meðan lögreglumenn eru í starfi.

Fyrstu tveir stafir númersins ráðast af byrjunarári í lögreglu en tveir þeir síðari segja til um röðun þeirra sem ráðnir eru á sama ári. Ef tveir eða fleiri byrja á sama tíma skal sá sem eldri er fá lægra númer.

Númerin skulu vera ísaumuð gylltum þræði í svartan efnisbút, sem er 25 x 47 mm í þver­mál. Númerin eru 12 mm á hæð og 37 mm á lengd (4 tölustafir). Letrið skal vera gyllt blokkskrift. Lögreglunúmer skal festa á smeyga lögreglumanna. Lögreglunúmer er ekki notað á jakka 1.

Afleysingamenn og héraðslögreglumenn fá úthlutað svokölluðu „H-númeri“, sem er númer sem byrjar á bókstafnum H og hlaupandi númeraröð (H001-H9999), sem raðað er eftir skráðum byrjunardegi. Þegar tveir eða fleiri eru ráðnir á sama tíma gildir sama regla og um fastráðna lögreglumenn. Afleysingamenn, sem ekki hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins, svo og héraðslögreglumenn, bera ekki lögreglunúmer á einkennisfatnaði sínum.

Aldrei má úthluta lögreglunúmeri sem annar maður hefur borið. Á þetta jafnt við um alla lögreglumenn hvernig sem ráðningarform hefur verið. Ríkislögreglustjóri getur sett nánari reglur um lögreglunúmer.

Þannig að ef einkennisklæddur "apaköttur" þykist ekki hafa númer þá skal hiklaust kalla til lögreglumann sem auðsjáanlega hefur númer og kæra þann númerslausa fyrir að villa á sér heimildir þar sem hann er auðsjáanlega að brjóta 117.gr laga nr 19 frá 1940 en hún er svona 
117. gr. Hver, sem vísvitandi eða af gáleysi notar opinberlega eða í ólögmætum tilgangi einkenni, merki eða einkennisbúning, sem áskilinn er íslenskum eða erlendum stjórnvöldum eða hermönnum, eða einkenni, merki eða búning, sem er svo áþekkur hinum ofannefndu, að hætta er á, að á verði villst, skal sæta sektum.

Til vara ætla ég þá að setja 116gr sömu laga

116. gr. Hver, sem tekur sér eitthvert opinbert vald, sem hann ekki hefur, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 1 ári]1) eða, ef miklar sakir eru, fangelsi allt að 2 árum.

Svona er þetta að sinni þar sem ég fann ekki í lagasafninu greinina sem fjallar um ólögmæta eyðingu sönnunargagna.

Munið svo að allir lögreglumenn eru með númer hversu mikið eða lítið þeir eru skreyttir.

Svo sagði pabbi mér að svona vinnubrögð væru ekki stétt sinni til sóma og minni ég á pistil gærdagsins um það mál.

http://1kaldi.blog.is/blog/1kaldi/entry/518898/

Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flottur pistill, þetta er einmitt það sem fólk þarf að vita.

Andri (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 23:29

2 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sjonni:

Ég er bara að vinna hér þar sem nafli alheimsins er Keflavíkurflugvelli, þar sem þarf að koma niður einhverri olíulögn.

MBK

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 27.4.2008 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband