Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Þetta er stærsti fíflaskapurinn korter í kostningar!!!

Það að hleypa þessu í fréttirnar með þetta er bara til að sýna að hún á ekki heima í þessum flokki.

Svona er bara til að fá fólk til að hugsa um að kjása eitthvað annað en VG það er á hreinu.

Hún hefur ekki athugað hvað verði til mörg störf útfrá þessu öllusaman og ef það finst olía í vinnanlegu magni þá mun það laga hallann sem er á fjárlögum.

En hitt er svo annað mál að ég hef verið að skoða hvað flokkarnir bjóða og sé strax að framsókn ætlar ekki að gera neitt.

Rök... Jú ég fékk pésa frá einum frambjóðanda framsóknarflokks og sá að þeir ætluðu að gera einhverja hluti sem eru búnir reyndar að vera í gangi í töluverðan tíma útkoman sýnir að þeir geri ekkert í þeim málaflokki annað en að sjá hann klárast án þess að þeir geri nokkuð þar.

Svona var um helming atriða sem útlistuð voru í þessum bleðli.

Hinn helmingurinn fólst annarsvegar í því að þeir ætla að láta þá hluti standa í stað, eða hreinlega gera ekki neitt í þeim málaflokkum. Síðasta atriðið var 20% leiðréttingin margfræga, en þar sem þeir töluðu um leiðréttingu þá gat ég ekki lesið annað en hægt væri að fara í báðar áttir.

Samfylkingin eða "Herfylkingin" eins og ég kýs að kalla hana sér bara eina lausn á öllum vandamálum þjóðarinnar og það er ????? Hvað haldið þið?

EBé. Þeir sjá ekkert annað og hafa þar af leiðandi í mínum huga bara eitt stefnumál og sú stefna hugnast mér ekki og ætti ekki að hugnast neinum í raun.

EBé er búið að samþykkja og það í Febrúar á þessu ári að huga að stofnun vopnaðra sveita sem eiga að þróast og verða að væntanlegum Evrópuher sem hvert aðildarríki verðuð skikkað til að skaffa manskap í. Semsagt Íslenskt fallbyssufóður fyrir einhverja ímyndaða óvini og ekkert nema aukakostnaður.

Sjálfstæðisflokkurinn gerir ekkert annað en að en að koma með hræðsluáróður og það er ekki stefna sem mér hugnast. Ekkert virðist vera af viti þar og sérstaklega hugnast mér ekki nýi formaðurinn hjá þeim hann hefur ekki migið í saltan sjó hvað þá að hafa dýft hendi í kalt vatn svo ekki er á svoleiðis dekurdýr að treysta.

Þetta er svo í pottin búið að maður þarf að klóra sér í hausnum aðeins lengur með hvað egi að kjósa.

En ég er reyndar búinn að ákveða mig og er búinn að gefa út að ég fer eftir þeim skilaboðum sem Bjarni Harðar sendi mér fyrir örfáum dögum.

Gleðilegt sumar

Kaldi

 


mbl.is VG gegn olíuleit á Drekasvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband