Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Skrifleti eða ekki???

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarna daga.

Nú um þessa helgi hef ég verið að starfa með Björgunarsveitinni Suðurnes þar sem við höfum verið við sjúkragæslu í Grindavík, þeir sem eru í Bjsv. Þorbjörn í Grindavík eru vonandi ánægðir með okkurWink.

Vonast ég til þess að bloggvinkona, og reindar góð vinkona sé ánægð með þessa afsökun þar sem hún var með smá stríðnisskot á mig í færslunni sem var á undan þessarri.

Hún á svo hrós skilið fyrir að hvetja mig svona áfram  








Og enn er dóttirin með vinninginn!!!

Já hún sigraði í kvöld eins og á Þriðjudag með því að geta uppá átta af þeim tíu lögum sem komust áfram.

Ég hafði sjö af tíu og konan sex af tíu.

Athyglisvert að sjá mun á keppendum sem klæddust svipað eins og Sænska Carola og hin Úkraínska sem ég man ekki nafnið á.

Carola var í byrjun hins annars ágæta lags eins og uppvakningur nýkominn úr húðstrekkingu með alla þessa rúmmetra af sparsli í andlitinuSick. Sorry, það er ekki hægt að leyna aldri og fyrri störfum með sparsli og strekkingum.

Hin Úkraínska mikið myndarlegriJoyful

En annars....

Ég óska Íslensku keppendunum til hamingju með árangurinnHappy En munið að það er ekki sigur í Eurovision á Laugardag sem skiptir máli, það er að hafa komist í lokakeppnina sem skiptir máliWink.

 


mbl.is Ísland áfram í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var hissa

Að sjálfsögðu sátum við fjölskyldan fyrir framan imbann og hlustuðum á þessi lög sem voru spiluð.

Ég setti saman lista yfir þau lög er ég spáði að kæmust áfram, en svo gerðu einnig kona og dóttir.

Listinn minn gerði ráð fyrir lögum frá Finnlandi, Rúmeníu, Armeníu, Rússlandi, Hollandi, Slóveníu, Grikklandi, Ísrael, Belgíu og svo setti ég San Marino og Írland þar sem ég var ekki viss með hvort færi......

Listi dóttur minnar sem samanstóð af Ísrael, Eistlandi, San Marino, Belgíu, Slóveníu, Noregi, Póllandi, Andorra Hollandi, Rúmeníu, Rússlandi, Grikklandi. En það skal tekið fram að hún valdi Norska lagið vegna þess að besta vinkonan er frá Noregi, og Pólska lagið að sjálfsögðu vegna þess að hún er hálf Pólsk......

Svo er listi konunnar en hann var svona. Slovenía, Armenía, Finland, Ísrael, Holland, Rússland, Eistland, Grikkland, Rúmenía, Montenegro (Svartfjallaland)......

Svo þegar ljóst varð hvaða lönd komust áfram þá varð ég hissa ekki síður en konan.

Finnland

Rúmenía

Armenía

Rússland

Grikkland

Ísrael

Bosnía Herzegovina

Aserbajdsan (hvernig skrifar maður svona í flýti?)

Pólland

Noregur

Úrslitin á heimilinu urðu því á þann veg að dóttirin vann með 7 rétt á móti 6 hjá mér og 6 hjá konunni.....

Ég átti engann veginn voná að Pólland kæmist áfram, hvað þá að Norðmenn kæmust líka en svona er þetta bara......

Svo vona ég að sumir hér í bloggheimum fari að hlusta á lög með opnum huga og án (WhistlingfordómaWhistling), það er nefnilega þannig að sum þessara laga sem ég hefði valið kæmu ekki til greina ef ég væri eins þenkjandi og sumir.....

Taki til sín sem eigaPolice


mbl.is Noregur og Finnland áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskrift...

DSC00025minkud Dóttir mín Viktoría Ása við útskrift í dag á Leikskólanu sínum.

Tekur sig vel út með útskriftarhattinnWink

 


Franskir stuðningsmenn Eurovision faranna okkar.

Það er gaman að flækjast um youtube.com þessa dagana.

Rakst á einhverja stuðningsmenn okkar eurovisionfara, en þau gerðu nýtt myndband við lagið "this is my live" sem sjá má hér http://www.youtube.com/watch?v=1_jc8CQAm3A&feature=related

Þessi tvö koma frá Frakklandi, njótið vel.


Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband