20.5.2008 | 22:50
Ég var hissa
Að sjálfsögðu sátum við fjölskyldan fyrir framan imbann og hlustuðum á þessi lög sem voru spiluð.
Ég setti saman lista yfir þau lög er ég spáði að kæmust áfram, en svo gerðu einnig kona og dóttir.
Listinn minn gerði ráð fyrir lögum frá Finnlandi, Rúmeníu, Armeníu, Rússlandi, Hollandi, Slóveníu, Grikklandi, Ísrael, Belgíu og svo setti ég San Marino og Írland þar sem ég var ekki viss með hvort færi......
Listi dóttur minnar sem samanstóð af Ísrael, Eistlandi, San Marino, Belgíu, Slóveníu, Noregi, Póllandi, Andorra Hollandi, Rúmeníu, Rússlandi, Grikklandi. En það skal tekið fram að hún valdi Norska lagið vegna þess að besta vinkonan er frá Noregi, og Pólska lagið að sjálfsögðu vegna þess að hún er hálf Pólsk......
Svo er listi konunnar en hann var svona. Slovenía, Armenía, Finland, Ísrael, Holland, Rússland, Eistland, Grikkland, Rúmenía, Montenegro (Svartfjallaland)......
Svo þegar ljóst varð hvaða lönd komust áfram þá varð ég hissa ekki síður en konan.
Finnland
Rúmenía
Armenía
Rússland
Grikkland
Ísrael
Bosnía Herzegovina
Aserbajdsan (hvernig skrifar maður svona í flýti?)
Pólland
Noregur
Úrslitin á heimilinu urðu því á þann veg að dóttirin vann með 7 rétt á móti 6 hjá mér og 6 hjá konunni.....
Ég átti engann veginn voná að Pólland kæmist áfram, hvað þá að Norðmenn kæmust líka en svona er þetta bara......
Svo vona ég að sumir hér í bloggheimum fari að hlusta á lög með opnum huga og án (fordóma), það er nefnilega þannig að sum þessara laga sem ég hefði valið kæmu ekki til greina ef ég væri eins þenkjandi og sumir.....
Taki til sín sem eiga
Noregur og Finnland áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Desember 2014
- Október 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Desember 2013
- September 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hlustaði ekki á þessi lög. Hef enga skoðun.
En með fordómana -huh -hum og ha. Alla ævi mína eða stóran hluta hennar taldi ég mér trú um að ég væri fordómalaus í það minnsta fordóma lítil.
Svo fór ég að sitja tíma hjá hinni einu sönnu Dóru Bjarnason í KHÍ.
Eftir nokkar tíma hjá henni 2000-2003 man ekki nákvæmlega komst ég að því gagnstæða, ég er/var með fordóma gegn:
fyllibyttum
fíklum
öryrkjum
bótaþegum
geðsjúkum
auðnuleysingjum
feitu fólki
litlu fólki
menntuðu fólki
ómenntuðu fólki
ljótu fólki
fríðu fólki
hvítu fólki
svörtu fólki
þroskaheftum
þroskaskertum
fötluðum
lömuðum
pólverjum
dönum
tælendingum
reykvíkingum
vesturbæjingum
breiðhyltingum
smáþorpurum
íþróttamönnum
tónlistarmönnum
fordómafullu fólki
hrokafullu fólki
gáfuðu fólki
Og svo framvegis og svo framvegis................
Ég vissi það ekki þá en veit það núna. Endurskoða hug minn daglega því í kolli mínum geymi ég gullið.
Ég var og er með meiri fordóma gagnvart öllu mögulegu, það er að breytast.
Góðir hlutir gerast hægt.
Njótið dagsins lífsins og hvers annars.
Hafdís Lilja Pétursdóttir, 21.5.2008 kl. 07:44
fegin er ég að hafa ekki verið ein að glósa yfir þessu reyndar fannst mér nú að bara 3 lönd ættu skilið að komast í úrslit, svo hefðu 2 önnur kannski mátt dingla með en ég get ekki gert betur en þetta, svo slæmt var þetta að mestu.
halkatla, 21.5.2008 kl. 09:43
Kíkti við
Hafdís Lilja Pétursdóttir, 22.5.2008 kl. 07:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.