Leita í fréttum mbl.is

Mismunun...

Sem felst í því að ekki hafa öll börn á landinu jafnann aðgang að þessum banka sem hefur haft svo mörg nöfn að erfitt er að muna.

Hér á Reykjanesi er ekki eitt einasta utibú og komast því börn frá Garði, Sandgerði, Reykjanesbæ, Vogum, og Grindavík ekki auðveldlega inn í Hafnarfjörð til að fá þetta blað.

Þetta er mismunun enda gerir maður sér grein fyrir því að það hafa heldur ekki allir á Suðurnesjum efni á að aka til Hafnarfjarðar með börnin sín.

En heppin eru þau börn sem höfðu möguleikann á að fara í þennan margnafna banka til að fá sitt eintak af Andrésar andar blaðinu.

Svo get ég bætt við að minn viðskiptabanki er með útibú í Reykjanesbæ og því stutt fyrir mig að fara í bankann þó ég hringi oftar.


mbl.is Mikið sungið í bankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það má bæta við að þessi sami banki lokaði útibúi hér á Suðurnesjum vegna "sparnaðar" hve gáfulega sem það hljómar horfandi á gróða bankans...

Ólafur Björn Ólafsson, 22.2.2012 kl. 19:38

2 identicon

Almáttugur, þvílíkur vælulýður á veraldarvefnum!

Er þér virkilega alvara?

Er hægt að væla út af öllu nú til dags?

Þó að bankinn hafi látið þig borga öll þau lán sem þú hefur tekið yfir árin og þér þyki það ömurlegt að þurfa að borga þau, þá þýðir það ekki að Arionbanki beiti misrétti afþví að hann er ekki með útibú í hverju þéttbýli landsins.

Eins og ég segi, þvílíkur vælulýður.

Nafnlaus (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 20:11

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Þú hefur greinilega ekki lesið alla færsluna...

Þessi umræddi banki er EKKI minn viðskiptabanki og hefur aldrei verið. Ég er með alla mína þjónustu hjá öðrum banka sem ekki hefur verið í sífelldum nafnabreytingum...

Einu lánin sem ég hef eru frá Íbúðalánasjóði... Kanski spurning að þú fáir vælubílinn til þín... :)

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 22.2.2012 kl. 21:28

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Kaupa-þingið-banki=Arionbanki "gefur" börnum örþunnt öskudags-Andrésblað! Börnum sem misst hafa fjölskyldur og heimili vegna bankaráns!!!

Fyrst kaupir bankinn þingið og svo kaupir hann börnin.

Er þetta virkilega að gerast, án þess að fólk skilji brenglunar-sálfræði bankans í þessu???

Bankar og fjármálastofnanir hafa lánað og innheimt ó-lögvarðar skuldir með svikum og prettum, og stjórnarskráin er ekki einu sinni WC-pappírs-virði fyrir þessum sjúklingum, sem stjórna "banka-góðmennskunni".

Þetta minnir mig á gamla John D. Rocefeller, sem gaf börnum smápeninga, til að verða aftur vinsæll í Ameríku, eftir öll BILDENBERG-LEYNIFÉLAGS-SVIKIN. "Barngóða" gamalmennið??? Í leynifélögum eru margir kallaðir en fáir útvaldir (eins og í flestum félögum).

Öll leynifélög samanstanda af innsta kjarna og nytsömum sakleysingjum. Sakleysingjarnir eru eins og upptrekktar dúkkur. Þeir hlaupa út og suður fyrir yfirboðara sína, en hafa enga yfirsýn yfir hvað raunverulega er að gerast. Þeir eru notaðir til að koma af stað vígbúnaðarkapphlaupum, opna lönd fyrir lánum, ,,friðsamlegri verslun" o.s.frv.

Hvert var hlutverk leynimakkarans Bernhard prins af Hollandi, eiginmanns Hollandsdrottningar, hluthafa í Royal Dutch Shell, í þessu "Íslands-öskudags-barnaláni"???

Og "vælulýður" eru þeir kallaðir, sem gagnrýna svikular banka-kaupsýslu-aðferðirnar!

Lýsingarorðið misrétti er afskaplega vægt til orða tekið, um svona saklausra-barna-banka-rán.

Minni á vef Jóhannesar Björns: vald.is og vef Guðbjörns Jónssonar: gudbjornj.blog.is.

Það er ekki í boði að sofa á gagnrýni-verðinum núna, eins og gert var alla tíð fram að hruninu árið 2008!!!

Sá sem skilur lyklana eftir í bílnum sínum, fær hann ekki bættan ef honum verður stolið!!!

Skiljanlega!!!

M.b.kv. 

8

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 22:25

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

...afsakið 8 þarna neðst, sem er prentvilla.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 22:32

6 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Þakka þér Anna Sigríður fyrir þessa ágætisupprifjun um John D. Rockefeller. Það er nefnilega þörf áminning um að maður á ekki að gleyma sögunni, hún endurtekur sig í sífellu...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 22.2.2012 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband