Leita í fréttum mbl.is

Svo er að sjá sem ESB sinnarnir hafa fundið.....

Eitthvað á okkur andstæðingana.

Ég setti inn athugasemd hjá einum og var svo jafnharðann þurkaður út og bannaður á hans síðu vegna andESB sinnaðra skoðana.

Ég læt færslu mannsins fylgja hér að neðan ásamt athugasemd minni sem ég ritaði við pistil hans.

"

28.7.2009 | 19:32Brot á tjáningarfrelsi listamannsHræðsluáróður ESB andstæðinga hefur magnast upp eftir að Alþingi samþykkti að senda inn aðildarumsókn að bandalaginu. Hótað hefur verið stríði, jafnvel blóðugu og stofnun öfga-þjóðernisflokks verið boðuð.ESB andstæðingar vita að "áróðursstríðið" þeirra er tapað. Þeir eru orðnir örvæntingarfullir enda taka sífellt færri mark á þeim og sjá í gegnum lygarnar og blekkingarnar. Kannanir hafa sýnt að ESB aðild nýtur stuðnings meirihluta þjóðarinnar og stuðningurinn virðist aðeins fara vaxandi.Lýðræðislegar kosningar eru ekki virtar. Vilji almennings er ekki virtur. Skoðanir þeirra eru hinn heilagi sannleikur að þeirra þröngsýna mati. Inn í málflutninginn blandast trúarofstæki og gamaldags útlendingafordómar. Þegar hræðsluáróðurinn gengur ekki í fólk er gripið til þjófnaðar.Hlynur Hallsson, myndlistarmaður og fyrrverandi varaþingmaður Vinstri Grænna, hefur nú þrívegis orðið fyrir barðinu á þjófum sem hafa ítrekað fjarlægt listaverk hans á Akureyri. Þjófarnir eru andstæðingar Evrópusambandsins og líkar illa sá listgjörningur Hlyns að flagga Evrópusambandsfánanum á hólma í tjörninni við Drottningarbraut. Þjófnaður er ólöglegt athæfi eins og öllum er kunnugt um. ESB andstæðingar telja hinsvegar að það sé tjáningarfrelsi sitt að stela ef það hentar málstað þeirra.Andstæðingar Evrópusambandsins hafa sýnt að þeir eru tilbúnir að fremja ólögleg athæfi til að koma sínu á framfæri. Í kjölfar þjófnaðar fylgja alvarlegri brot og ef marka má hótanir þeirra þá er ekki langt í að slík brot verði framin. Því ættu yfirvöld að líta málið alvarlegum augum. En fyrst og fremst þarf að kenna ESB andstæðingum það að tjáningarfrelsi er virt á Íslandi og listgjörningur sem þessi er löglegur þó þeim líki hann ekki.  

Andstæðingar ESB mótmæla listaverki
Ábyrgðarmaður færsluTilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Flokkur: Evrópumál | Facebook « Síðasta færsla

Athugasemdir

Augnablik... Vakta athugasemdir Þú ert að vakta athugasemdir við þessa færslu. Hætta að vakta

 

1 Hvað ef brotthvarf "tuskunnar" er svo túlkað sem gjörningur, vist form af listsköpun sem sýnir hina hliðina???Það er hægt að ræða ESB tuskuna lengi en ef þetta er það eina sem ESB sinnar hafa á andstæðingana í dag þá er þrettándinn orðinn frekar þunnur...Með kveðjuKaldiESB ANDSTÆÐINGUR!A.T.H. Þessi færsla er geymd hjá mér til betri tíma eins og allar aðrar sem fara á síður ESB sinna vegna ritskoðunarstefnu þeirra.Ólafur Björn Ólafsson, 28.7.2009 kl. 20:52

"

Ég reyndi að svara þessarri ritskoðun en þá var búið að banna mér aðgang að athugasemdum hjá aðilanum.

Þetta segir mér að hjá ESBsinnum er aðeins ein skoðun til og hana þekkja allir sem vilja, aðrar skoðanir eru ekki leyfðar.

Þetta er í mínum huga svipaðar aðferðir og hafa verið notaðar í gegnum aldirnar hjá einræðisherrum sem bönnuðu allar skoðanir nema sýnar egin.

Svo er bara að bíða og sjá hvort ESB viðhafi ekki líka svona ritskoðanir og banni allar skoðanir nema þá einu sem þeim þóknast.

Ef svo er þá er ég bara harðari andstæðingur fyrir vikið.

Með kveðju

Kaldi

Og munið þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af að ég banni athugasemdir hér nema orðaval ykkar hafi verið þannig en þá mun ég taka það fram áður en færsla er fjarlægð.


mbl.is Andstæðingar ESB mótmæla listaverki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það getur verið erfitt að lýkja því saman þar sem þeir leyfa allmennt ekki athugasemdir hjá sér.

En þegar menn leyfa athugasemdir en fjarlægja svo það sem samrýmist ekki skoðunum þeirra er að mínu mati verra þar sem það getur endað með ósköpum.

Ef ESB sinnarnir eru eins og hinir sem á móti eru þá ættu þeir að hugsa sér gott til glóðarinnar og reyna að rökræða aðeins við andstæðingana.

Þeir virðast allment ekki kunna það og beita því þessarri aðferðarfræði að hamra á sínum skoðunum og leyfa engar aðrar en þær sem samrýmast þeirra egin.

Það er líka til að menn leyfi aðeins vissum aðilum að skrifa athugasemdir og tel ég það líka vera skárra en að leyfa fyrst en banna svo.

kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 28.7.2009 kl. 21:57

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Hvort sem menn er með eða á móti aðild að ESB finnst manni þessi athugasemdaviðkvæmni ábending um það að fólk sé ekki nægilega öruggt með sig í umræðunni.

Ég er eindregið á móti ESB aðild en hef ekkert á móti góðum rökræðum í málinu. Ég tel mig knúinn til að hlusta á öll rök aðildarsinna til að geta andmælt þeim af einhverju viti. Við erum samt ekki í svart-hvítum heimi. Það eru kostir við aðild þó svo að ég kjósi fullveldi umfram skammvinnan efnahagslegan ávinning. Til lengri tíma litið tel ég okkur sjálfa vera okkar bestu vini, vil ekki verða að útnáranýlendu og Það er bara mín skoðun.

Ég felli aldrei niður athugasemdir á mínu bloggi og velkomið að andmæla þar hverju sem er.

Lifi málfrelsið!

Haukur Nikulásson, 28.7.2009 kl. 22:02

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þessi tiltekni bloggari er stórmerkilegur.  Hann birtir færslur með undarlegu sjónarhorni og jafnvel rangfærslum og sögufölsun og eyðir út öllum þeim sem reyna að leiðrétta hann og bannar þeim að skrifa athugasemdir aftur.

Ég tók saman svipaða færslu og þú Kaldi fyrir nokkrum dögum.

Axel Þór Kolbeinsson, 29.7.2009 kl. 10:36

4 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

sæll Haukur, ég er sama sinnis og þú með það að hlusta beri á öll rök hvort sem þau eru með eða á móti aðild. Það gildir að sjálfsögðu líka þó maður sé búinn að mynda sér skoðun.

Axel Þór. Ég sé að þú fattaðir um hvaða mann er að ræða, enda taldi ég óþarfi að byrta nafn hans á minni síðu frekar en þú um daginn. Las þína færslu fyrir nokkrum dögum.

Svo er við að bæta að mig grunar að ESB sinnar hafi skotið sig í fótinn með þessum úthrópunum samanber pistil Hjartar um málið http://sveiflan.blog.is/blog/sveiflan/entry/922198/

Vona að þetta sé tengill á réttan pistil hjá honum en byðst forláts ef svo er ekki.

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 30.7.2009 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband