Leita í fréttum mbl.is

Hraði þjóðfélagsins og barnauppeldi

Ég hef aðeins velt fyrir mér spurningunni um það hvað allur þessi hraði geri börnunum okkar.

Nú er svo komið að margir foreldrar eru með þessar fínu barnapíur sem kallast sjónvarp, allavega er það eitthvað sem maður hefur heyrt. Hvernig fer þetta með börnin?

Ég tók eftir því um daginn þegar dóttir mín kom heim ásamt einhverjum leikfélögum að margt er misjafnt þegar kemur að umgengni við börnin. Ég gef mér til dæmis tíma til að leika við dóttur mína þegar ég kem heim eftir vinnu ( já ég er enn með eitthvað af barninu í mérW00t).

En þegar dóttir mín kom með leikfélagana heim (svo maður snúi sér aftur að efninu), þá brá ég mér á leik aðeins við dóttur mína og hvað heyri ég þá?

Jú leikfélagarnir sögðu strax við dóttur mína " Rosalega átt þú skemtilegan pabba!"

Þetta varð til þess að ég fór að velta fyrir mér hverskonar pabbar það eru sem þessi börn eiga? Ef ég er allt í einu orðin besti pabbinn í hverfinu. Er það af því að ég hef gaman af að leika við dóttur mína og sýna henni hluti sem gaman gæti verið að búa til eitthvað sniðugt úr?

Hvað eru hinir foreldrarnir að gera? hafa þeir engann tíma til að eyða með börnum sínum?

Ég mæli með því að foreldrar noti meira af tímanum til að vera með börnum sínum þar sem þau eru jú bara börn einu sinni. Það er ekki tími til að eyða með börnunum þegar þau loksins eru orðin fullorðin, það er einfaldlega orðið of seint þar sem þau eru ekki börn lengur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fishandchips

Alveg sammála. Hef þessa reynslu líka, en að vera kölluð cool mamma.

Fishandchips, 15.10.2007 kl. 23:33

2 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Mikið er ég sammála þér. 

Bergdís Rósantsdóttir, 16.10.2007 kl. 17:56

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Daddy Cool  Flottur

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.10.2007 kl. 02:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Björn Ólafsson
Ólafur Björn Ólafsson

Er fullveldissinni og þar af leiðandi á móti því að setja fullveldi þjóðarinnar í hendur bjúrókratanna í Brussel. Þessi síða er sett fram með mínum skoðunum um menn og málefni, ef þú lesandi góður finnur hjá þér þörf til að skjóta á mig þá skal hafa í huga að skot skulu eingöngu á mig og mínar skoðanir, engann annan aðila í minni fjölskyldu annars sé ég mig knúinn til að ritskoða og mér er ekki vel við það. með von um góða hegðun á spjalli mínu

Ólafur B Ólafsson, Kaldi

kaldi@lognid.is http://www.kaldi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband